Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006
30.6.2006 | 07:21
Ekki raud heldur brún!
hae hae allir!
Kominn fostudagur og enginn skóli á morgun :) Vid aetlum á markadinn í dag og í kvold aetlum vid saman út ad borda og kíkja e-d út :) ég er búin ad eyda soldid miklu held ég. Ég er búin ad fara eina verslunarferd og svo kostar svo mikid e-d ad fara med lestinni og vid lifum nánast tar vid tokum hana svo oft :S og btw er búin ad kaupa spaenskt nr. Ef e-r tarf ad ná í mig er nr-id: 0034-667830486 :)
Aedislegt vedur núna. Vorum í sólbadi naestum allan gaerdaginn! Er ekki frá tví ad ég er ordin adeins brún, ekki raud heldur BRÚN! veeei!
Tad er ekkert sérstakurmatur á heimavistinni. tad er bara einu sinni búid ad vera e-d gott í matinn og tad var í gaerdag og tá fengum vid kjúkling. Ég er heldur varla búin ad borda morgunmat á heimavistinni :S er bara búin ad lifa á kellogs special k bar :)
En jaeja, tíminn er ad byrja..
Adiós mis amigos!
kv Heida brúna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2006 | 12:56
Dagur 2 í skólanum
jaeja, í dag er dagur 2 í skólanum. Miklu betri en sá fyrsti. tetta er bara mjog gaman. Ég og Gerdur aetlum á Plaza de Catalunya ad versla og svo tegar hinar stelpurnar eru búnar í skólanum aetlum vid á markadinn. Svona fyrir kvoldid tvi ad vid erum búnar ad finna mjog gódan skemmtistad á strondinni og vid aetlum ad tjékka á honum í kvold.
Í gaer var ekiki gott vedur. tad var bara frekar kalt og lítil sól. Ég og Gerdur fórum nidrá strond ádur en vonda vedrid kom og aetludum ad sofna í sandinum tví vid vorum svo treyttar. Tegar vid vorum loksins komnar kom "vonda vedrid" en vid gátum samt sofnad, í svona hálftíma. tá hrukkum vid upp og skulfum eigilega úr kulda! Svona á tetta ekki ad vera á Barcelona maaan!
en jaeja, Gerdur er farin ad bída, verd ad fara.
kv Heida
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2006 | 11:33
live from barcelona
hola mis amigos!
Allt frábaert hérna sudureftir! Erum búnar àd villast nokkrum sinnum og sonna en tad er bara gaman.
aetla ad segja ykkur frá einni skemmtilegri sogu hédan. ég og katrín erum nefnilega svo klárar ad tegar vid komum af flugvellinum sogdum vid leigubílstjóranum vitlaust heimilisfang en fottudum tad ekki fyrr en hann var farin :p Tá vorum vid staddar fyrir framan skólann en ekki gistinguna! Aleinar med ferdatoskur og allir horfandi á okkur. Vid lobbudum smáspol en bádum svo einhvern gaur á hamborgarabúllu ad hringja á leigubíl fyrir okkur. hann gerdi tad og vid bidum bara út á gotu eftir taxanum. Svo kom hann loksins og fór med okkur á réttan stad :) en tetta er ekki búid! tegar vid komum vorum vid laestar úti og turftum ad hringja í neydarnúmerid. Á medan vid bidum eftir José komu um 10 loggubílar keyrandi framhjá med ljósin á og allt. Stoppudu rétt hjá okkur og birjudu ad lýsa á húsid á móti med vasaljósum og tala í walky talky taekin sín. Leitudu meira ad segja í ruslafotum og allt! teir voru greinilega ad leita ad einhverjum en fundu hann ekki. Ég og katrín hugsudum bara "yeah right, rólegt hverfi!" Svo kom José og allt í gúddí.
Ádan fórum vid fyrst í skólann í eitthvad próf, ég suckadi í tví marr!
Erum búnar ad gera mergt meira en ég verd ad fara núna, allt ad fyllasat af krokkum og stelpurnar ad bída.
tala meira seinna tegar ég hef tíma
kv Heida, live from Barcelona!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2006 | 10:46
Mañana!
tomorrow tomorrow..always tomorrow..jebb, það er rétt. Annað kvöld verðum við staddar í Barcelona. Ég hlakka svo til!! Ég nenni svo EKKI að vera að vinna. Ég dreymi bara um að vera heima að pakka og vera í góðum fíling. En ég meina hver segir að ég geti ekki verið í góðum fíling hér? Það þarf bara að peppa aðeins upp á stemninguna hér það þyrfti bara að taka fólk í
smá salsa kennslu og gefa því góða sangríu, þá er þetta komið
Ætli við verðum ekki flott!
Mér líður eins og ég sé að fara að vera ár úti en ekki bara 1 mánuð. Þegar maður pælir í þessu er þetta ekkert svo lengi, auðvitað lengur en venjulega en samt ekkert það langt. Held að þetta eigi eftir að líða roslalega fljótt. Eins og maður segir "þegar það er gaman flýgur tíminn"
En jæja, ég er farin að bulla e-ð. Ætla bara hætta þessarri vitleysu.
Síjú honeys
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2006 | 10:54
Dos dias...
vá, þetta er svo sorglegt. Ég er búin að kveðja alla nema mömmu Þegar ég kem úr vinnunni verða þau bara farin og ég sé þau ekkert fyrr en ég kem heim frá Barcelona, þau ætla nefnilega að ná góðu tjaldsvæði á Stóra Hofi því um helgina er Jónsmessuútilegan. Ég hitti bara mömmu í hádeginu til að fara í banka og svo er þetta bara búið..lost case! Adios mi familia! þá get ég nú samt pakkað í friði, Leó verður ekki alltaf skríðandi ofan í ferðatöskuna og tínandi allt úppúr
Ég ætla svo að fá mér eins mikið af íslenskum mat áður en ég fer. SS pylsur, ost, ABT mjólk og e-ð fleira sem mér dettur í hug seinna.
Ég er búin að vera mjög dugleg að taka pensilínið. Ég er ekki búin að gleyma neinni töflu og ég hef getað kingt öllum töflunum Heiða dugleg!
Ég er orðin svo stressuð yfir því að gleyma e-u. Ég er alltaf að kíkja yfir listann minn yfir það hvað ég ætla að taka með mér og bæta á hann. Ég held samt að ef ég gleymi e-u verði það ekkert mikilvægt
Vá ég lenti í svo vandræðalegu í gær. Ég fór niðrí Myndval í mjóddinni til að ná í myndir úr framköllun. Ég vissi ekki alveg á hvaða nafni þetta var því að mamma downloadaði forritinu, pabbi skráði e-mailið en ég var að framkalla, þannig að ég varð að gefa þeim upp 3 nöfn og honum fannst það voða asnalegt. Svo leitaði hann og leitaði og leitaði og var að verða vandræðaleg og hugsaði hvort ég væri ekki í réttu búiðinni! Svo allt í einu sagði kallinn "sagðiru ekki kristín Einars?" og ég bara "jú" og hélt að hann væri búinn að finna þetta..en neeei. þá sagði hann "ég man eftir þessu nafni. Þetta eru myndirnar sem eyðilögðu næstum kerfið hjá okkur!" og ég varð ábyggilega fjólublá í framan af skömm. Hann bullaði svo e-ð á tæknimáli og ég kinnkaði bara kolli. Þetta endaði svo með því að ég þurfti að skýra myndirnar aftur og senda. Hann ætlaði svo að hringja næsta morgunn, semsagt núna og ég bíð bara eftir símtali þar sem ég mun annað hvort heyra "þetta er komið" eða "argh, myndirnar þínar eyðilögðu kerfið!" I´ll keep you posted
jæja, ætla að gera annan enskustíl
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2006 | 09:44
tres dias
Vá..3-2-1! Bara 3 dagar eftir. Það eina sem getur eyðilagt þetta er ef ég verð veikari en ég er. Ég er nefnilega komin með hálsbólgu. Alltaf þegar ég fæ hálsbólgu fæ ég alltaf svo mikinn hósta að ég get ekki sofið á næturna
Þannig að ég fór í gær á læknavaktina og fékk mér smá pensilín. Ég skil ekki alveg hvernig ég get verið hérna í vinnunni, röddin er alveg í fokki. Ég þarf alveg að reyna á mig svo það heyrist e-ð! það er ekki alveg nógu gott. Ég hlakka samt alveg hrikalega til laugardagsins...þá fer ég loksins út! Allt er á seinasta snúningi. Á ennþá eftir að gera slatta. Ég náði samt í passamyndirnar mínar í gær fyrir student ID cardið mitt og þótt ég segi nú bara sjálf frá þá eru þetta bestu passamyndir sem ég hef séð af mér! Enda notaði ég skólablaðsmyndina
Í dag fer ég svo í klippingu. Ég var komin að þeirri niðurstöðu að ég ætlaði ekki að gera neitt róttækt en samt er það svo freistandi
hvað á ég að gera? Ég hata þessa aðstöðu. En jæja, ætli það komi ekki bara í ljós hvað ég geri. Ég er líka að fara á nýja hárgreiðslustofu, kannski hafa þær nýjar hugmyndir
En jæja..ætla að fara að taka pensilínið..
kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2006 | 11:16
crazyness!
Aðeins 4 dagar!!! OMG VÁ CRAZY ÍÍÍ ARGH..vá ég veit ekki hvað ég á að segja! ég er núna byrjuð að hlakka meira til
það er samt svo mikið sem ég þarf að gera að ég get varla hugsað um þetta. Það eru bara endalausir hlutir, t.d. kaupa hina og þessa hluti, fara í bankann, fara í sporthúsið, fara í klippingu, læra latínu og fullt fleira. Ég þarf líka að fara til læknis..noooo..ég held nefnilega að ég sé að fá hálsbólgu! ARGH.. og alltaf þegar ég fæ hálsbólgu fæ ég heiftarlegan hósta og get ekki sofið og allt í fokki. Þess vegna ætla ég bara strax til læknis og fá lyf
Jæja, það er bara ekkert annað spennandi að gerast hjá mér, bara crazy mikið að gera! Dagurinn í gær var fullbókaður og ég náði ekki einu sinni að skjótast í Smáralind til að sækja passamyndirnar mínar. Eftir vinnu fór ég beint til latínukennarans, svo í sporthúsið og þaðan heim í sturtu og svo strax út að borða með stelpunum. Þegar ég kom heim var ég auðvitað uppgefin. Ég horfði samt smá á CSI og svo fór ég bara að sofa.
Ég bíst við að næstu dagar veri álíka en svo fer ég bara út! Ákkúrat þegar það á að koma ágætt veður hérna á Íslandi. En jæja..ég er bara farin að læra.
kv Heiða
P.S. E-n tímann áður en ég fer út ætla ég að setja inn e-r myndir hérna inn, svona svo þið munið hvernig ég lít út
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2006 | 12:16
5 dagar í vitleysuna
hæ hó jíbbí jei og jíbbí jei það er kominn 19 júní! Sem þýðir að það eru aðeins 5 dagar í veitleysuna í barcelona! Hver trúir því? allavega ekki ég!
það var gert margt og mikið um helgina. Á föstudaginn fór ég á MR tebó og skemmti mér bara ágætlega. 17. júní var ég að vinna yfir daginn. Eiginlega ekkert að gera, sérstaklega á meðan landsleikurinn var. Ég held að það hafi komið um 5 manns á meðan. Þegar ég var búin að vinna brunuðin ég og Bára heim í sturtu og svo beint niðrí bæ. Sáum Svitabandið spila og svo löbbuðum við bara um í leit að fólki en hittum eiginlega engann. Það var allt morandi í smápíkum sem héldu greinilega að þær væru á Flórída eða á e-m jafn fáránlegum stað því þær voru allar í snípsíðum pilsum og aðeins undirfötum undir. Ég meina, þetta virkar sums staðar eins og í Flórída, en ekki á íslandi að kvöldi til þegar það eru skúrir. Það er bara ekki fallegt stelpur! En allavega, þegar við vorum búnar að fá nóg af kuldanum stofnuðum við til partýs hjá betu og buðum fullt af fólki en þar sem ákveðnir einstaklingar (þið vitið hver þið eruð) beiluðu, varð ekkert meira úr þessu en ágæt spjalldrykkja. Ég keytði svo stelpurnar og Dodda niðrí bæ og hitti aðeins Gassa. Við rúntuðum smá og á endanum fór ég bara heima að sofa og svaf út eina skiptið þessa vikuna. Kíkti til ömmu og svo bara í vinnuna.
Ég er búin að vera mjög dugleg í dag. Er búin að skrifa alveg 4 enskustíla og á eftir að gera fleiri Þótt ég hafi farið vitlaust fram úr rúminu of mætti of seint í vinnuna.
en jæja, er að fara í mat.
kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2006 | 09:19
8 dagar
Jæja..nú eru bara 8 dagar í Barcelona. Það þýðir að þið þurfið að þola þessi ómótstæðilegu vinnublogg í 8 daga. Eftir það koma vonandi spennandi Barcelona blogg
Ég trúi ekki að það sé svona stutt í þetta! Mér finnst ég eiga eftir að gera alveg full áður en ég fer. Bráðum fer ég að fá drauminn minn. Það er nefnilega þannig að svo langt sem ég man þá hefur mig alltaf dreymt ákveðinn draum þegar ég er að fara til útlanda. Hann gengur í stórum dráttum út á það að ég er komin út og þá fatta ég allt í einu að ég gleymdi að pakka niður! þetta er ein af mínum verstu martröðum
En jæja, höfum þetta bara stutt.
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2006 | 11:44
Pff
Áðan var mikið að gera hérna í OR því það var einhver háspennubilun. En núna er ekkert að gera og mér leiðist..as usual.
Ég tók upp á því að fara á google og skrifa Aðalheiður. þegar ég skoðaði myndirnar komu 2 af 479 af mér! báðar ljótar. Ein frá skrekk í grunnskóla og ein úr Sveinbjörgu. Þetta er ekki alveg nógu gott
Svo þegar ég skrifaði bara Heiða, því ég er nú oftast kölluð það kom EINGIN mynd af 840 af mér! Ein af myndunum var þessi hérna. Mér finnst hún bara ekkert líkjast mér! pff..maður á ekkert að treysta þessu google smoogle.
En já..ég ætla að fara að leggja annan kapal.
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar