Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006
13.6.2006 | 14:31
mega úber dúber þreytt!
vá, ég er svo þreytt! þegar ég koma heim úr Orkuveitunni í gær gat ég verið heima hjá mér í rúmlega klukkutíma, þá þurfti ég að fara í hina vinnuna, Aktu taktu. Þar sem ég var þreytt fyrir var skelfilegt að vera í Aktu taktu og þar að auki var alvg slatti að gera, nema þegar ítalía og Gana voru að spila, þá datt smá niður. ég kom heim dauðþreytt á miðnætti voru frænka og frændi frá Akureyri heima og ég var auðvitað kurteis og vakti á meðan þau voru. Svo endaði það með því að ég sofnaði um tvöleitið. Ekki alveg nógu gott!
en jæja, enda þetta tilgangslausa blogg og fer að læra latínu..
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2006 | 11:45
Nada para hacer aquí en el trabajo!
Sí es verdad. No quiero estar aquí ahora, qiero estar en Barcelona. Por que hablo en espanol.
Vá æeg get ekki hætt að hugsa um Barcelona! ég er farin að hugsa á spænsku, svona smá frí frá latínu það er samt svo fínt að vera í þessarri vinnu þegar maður þarf að læra. Líka af því að við eru of margar þarf ég ekki einu sinni að vera á síma og er bara að læra! Það er eiginlega bara gott að ég þurfi að læra, annars væri ég ekki að gera neitt og það væri hræðilegt!! OMG, vil ekki einu sinni hugsa um það
en jæja, þetta var stutt annað blogg dagsins, vonum bara að þetta verði seinasta blogg dagsins. Kannski ég fari bara að blogga á cerasum síðuna. Sem er btw www.cerasum.blog.is kíkið endilega á hana og lesið bloggin mín um allt og ekkert
Ætla að kíkja á matseðil vikunnar..mmmm..
kv. Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2006 | 08:49
margt og mikið
Ég sit hérna í Hófíar tölvu og í símanum hennar. Er bara að nýta tímann meðan ég hef eitthvað pláss Er byrjuð að læra latínu og þetta leggst bara vel í mig. Ég held ég meiki þetta alveg, verð bara að læra jafnt og þétt. Ég þarf líka að redda mér einhverjum kennara til að kenna mér. Ef þið vitið um einhvern latínukennara sem gæti kennt mér endilega látið mig vita
Svo eru minna en 2 vikur í Barcelona, bara 12 dagar!! Það styttist óðfluga í þetta og ég verð alltaf spenntari og spenntari, á endanum spring ég bara því ég get ekki orðið spenntari
Ég er að vinna í ALLAN dag. Ég fer héðan og beint í Aktu Taktu. Vá hvað ég á eftir að vera þreytt á morgun. En ég meina hvað gerir maður ekki fyrir meiri pening í gjaldeyri
Í gær var svo opið hús í MR og við skólablaðsstelpurnar vorum að dreifa skólablöðum til tilvonandi nýnemum. Það vildu samt fáir fá blöð þar sem flestir eiga blöð heima hjá sér því þau eiga systkin og/eða foreldri úr MR og við fengum nokkrum sinnum svarið "nei takk, við eigum þrjú heima"
En jæja, ég er búin að tala um allt og ekkert. Ætla að halda áfram að skipuleggja og dreyma um Barcelona
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2006 | 11:25
Crowded á símanum
Mér líður soldið eins og ég sé fyrir hérna í OR. Svo er mál með vexti að það eru 4 básar, semsagt pláss fyrir 4 símadömur en núna er Inger, fjórna símadaman kom í vinnuna en hún er búin að vera veik. Ég var alltaf á símanum hennar en þar sem hún er komin aftur hef ég engan síma og enga tölvu. Ég á mér engan samastað. Þess vegna er ég búin að "stela" básnum hennar Hófí. Hún skrapp til að skoða e-a íbúð en núna er hún komin og labbar bara á milli og talar við stelpurnar þar sem ég er í básnum hennar! Þetta getur ekki haldið svona áfram
Kannski endar þetta eins og hérna á myndinni!
Ég er búin að nýta tímann hér vel. Ég er komin langt með listann minn yfir hvað ég þarf að gera og hvað ég þarf að taka méð mér til Barcelona. Ég fæ einnig latínubækurnar í dag þannig að lærdómurinn hefst í dag. Ég er ekki frá því að ég hlakka soldið til að læra latínu. Ég veit að þetta hljóma nördalega en þetta er e-ð svo nýtt. Ég hef aldrei lært eitthvað líkt þessu...eða kannski er ég bara nördi hehe
en jæja..ætla að fá mér meira af heitu kakói sem er svo mjög gott hérna
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.6.2006 | 13:31
Latína smatína :)
jæja, þá er það ákveðið. Ég ætla að fara yfir á málabraut og velja nýmáladeild 2. Því þarf ég að læra latínu í sumar og taka próf í haust. Ég þarf líka að taka enskan stíl, en það ætti að vera peace of pie.
En jæja..að öðrum málum. Vinna vinna vinna og sporthúsið. ég var í mat og mmm hann var góður. grillað lambakjöt og ís! Þvílík grilllykt um allt húsið og það þarf sko mikla lykt til að fylla allt orkuveituhúsið.
hvað segiði, bara næstum tvær vikur í Barcelona!! það er stutt í þetta. ég er að plana á fullu. Það er svo margt sem þarf að gera. Framkalla myndir, vegabréfið, borga, hvað á að pakka? og svo á milli að læra latínu og finna latínukennara. Ég þarf pottþétt að taka mér slatta af fríi eftir að ég kem heim, þá missi ég enn meiri vinnu En ég meina hvað gerir maður ekki fyrir MR?
En verð að fara
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.6.2006 | 10:14
Vinna..
jæja, þá er ég komin í vinnuna. Alltaf jafn rólegt á símanum, erum fullskipaðar og meira til. Við erum fleiri en símarnir eru
Í dag er samt ein veik þannig að ég kemst fyrir
og mér til mikillar hamingju er Heiða Björk aftur vinna
Ég þarf bara að komast af tvær og hálfa viku, sem er frekar lítið.
það sem er í huga mínum núna er matseðill vikunnar hér í vinnunni. Í dag er fiskigratín, efast um að ég borði mikið en á morgun er e-ð sem ég veit ekki hvað er og það er Ísparfait. Ef e-r veit hvað það er endilega segðu mér, kannski ég fari bara að gúgla þessu upp
En jæja..ætla að skrifa "things yo do" lista
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2006 | 14:49
Barcelonasíðan mín :)
hæhæ..ég bjó þessa síðu til að nota þegar ég fer út til Barcelona svo að allir geta fylgst með mér. Ég reyni að skrifa eins oft og ég get Ég blogga líka e-ð þegar ég byrja að vinna í Orkuveitunni :)
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar