8.6.2006 | 13:31
Latína smatína :)
jæja, þá er það ákveðið. Ég ætla að fara yfir á málabraut og velja nýmáladeild 2. Því þarf ég að læra latínu í sumar og taka próf í haust. Ég þarf líka að taka enskan stíl, en það ætti að vera peace of pie.
En jæja..að öðrum málum. Vinna vinna vinna og sporthúsið. ég var í mat og mmm hann var góður. grillað lambakjöt og ís! Þvílík grilllykt um allt húsið og það þarf sko mikla lykt til að fylla allt orkuveituhúsið.
hvað segiði, bara næstum tvær vikur í Barcelona!! það er stutt í þetta. ég er að plana á fullu. Það er svo margt sem þarf að gera. Framkalla myndir, vegabréfið, borga, hvað á að pakka? og svo á milli að læra latínu og finna latínukennara. Ég þarf pottþétt að taka mér slatta af fríi eftir að ég kem heim, þá missi ég enn meiri vinnu En ég meina hvað gerir maður ekki fyrir MR?
En verð að fara
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.6.2006 | 10:14
Vinna..
jæja, þá er ég komin í vinnuna. Alltaf jafn rólegt á símanum, erum fullskipaðar og meira til. Við erum fleiri en símarnir eru
Í dag er samt ein veik þannig að ég kemst fyrir
og mér til mikillar hamingju er Heiða Björk aftur vinna
Ég þarf bara að komast af tvær og hálfa viku, sem er frekar lítið.
það sem er í huga mínum núna er matseðill vikunnar hér í vinnunni. Í dag er fiskigratín, efast um að ég borði mikið en á morgun er e-ð sem ég veit ekki hvað er og það er Ísparfait. Ef e-r veit hvað það er endilega segðu mér, kannski ég fari bara að gúgla þessu upp
En jæja..ætla að skrifa "things yo do" lista
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2006 | 14:49
Barcelonasíðan mín :)
hæhæ..ég bjó þessa síðu til að nota þegar ég fer út til Barcelona svo að allir geta fylgst með mér. Ég reyni að skrifa eins oft og ég get Ég blogga líka e-ð þegar ég byrja að vinna í Orkuveitunni :)
kv. Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar