Dos dias...

vá, þetta er svo sorglegt. Ég er búin að kveðja alla nema mömmu Fýldur Þegar ég kem úr vinnunni verða þau bara farin og ég sé þau ekkert fyrr en ég kem heim frá Barcelona, þau ætla nefnilega að ná góðu tjaldsvæði á Stóra Hofi því um helgina er Jónsmessuútilegan. Ég hitti bara mömmu í hádeginu til að fara í banka og svo er þetta bara búið..lost case! Adios mi familia! þá get ég nú samt pakkað í friði, Leó verður ekki alltaf skríðandi ofan í ferðatöskuna og tínandi allt úppúr Brosandi Ég ætla svo að fá mér eins mikið af íslenskum mat áður en ég fer. SS pylsur, ost, ABT mjólk og e-ð fleira sem mér dettur í hug seinna.

Ég er búin að vera mjög dugleg að taka pensilínið. Ég er ekki búin að gleyma neinni töflu og ég hef getað kingt öllum töflunum Brosandi Heiða dugleg!

Ég er orðin svo stressuð yfir því að gleyma e-u. Ég er alltaf að kíkja yfir listann minn yfir það hvað  ég ætla að taka með mér og bæta á hann. Ég held samt að ef ég gleymi e-u verði það ekkert mikilvægt Brosandi

Vá ég lenti í svo vandræðalegu í gær. Ég fór niðrí Myndval í mjóddinni til að ná í myndframköllumir úr framköllun. Ég vissi ekki alveg á hvaða nafni þetta var því að mamma downloadaði forritinu, pabbi skráði e-mailið en ég var að framkalla, þannig að ég varð að gefa þeim upp 3 nöfn og honum fannst það voða asnalegt.  Svo leitaði hann og leitaði og leitaði og var að verða vandræðaleg og hugsaði hvort ég væri ekki í réttu búiðinni! Svo allt í einu sagði kallinn "sagðiru ekki kristín Einars?" og ég bara "jú" og hélt að hann væri búinn að finna þetta..en neeei. þá sagði hann "ég man eftir þessu nafni. Þetta eru myndirnar sem eyðilögðu næstum kerfið hjá okkur!" og ég varð ábyggilega fjólublá í framan af skömm. Hann bullaði svo e-ð á tæknimáli og ég kinnkaði bara kolli. Þetta endaði svo með því að ég þurfti að skýra myndirnar aftur og senda. Hann ætlaði svo að hringja næsta morgunn, semsagt núna og ég bíð bara eftir símtali þar sem ég mun annað hvort heyra "þetta er komið" eða "argh, myndirnar þínar eyðilögðu kerfið!" I´ll keep you posted Glottandi

jæja, ætla að gera annan enskustíl

kv Heiða


tres dias

Vá..3-2-1! Bara 3 dagar eftir. 3 dagarÞað eina sem getur eyðilagt þetta er ef ég verð veikari en ég er. Ég er nefnilega komin með hálsbólgu. Alltaf þegar ég fæ hálsbólgu fæ ég alltaf svo mikinn hósta að ég get ekki sofið á næturna Fýldur Þannig að ég fór í gær á læknavaktina og fékk mér smá pensilín. Ég skil ekki alveg hvernig ég get verið hérna í vinnunni, röddin er alveg í fokki. Ég þarf alveg að reyna á mig svo það heyrist e-ð! það er ekki alveg nógu gott. Ég hlakka samt alveg hrikalega til laugardagsins...þá fer ég loksins út! Allt er á seinasta snúningi. Á ennþá eftir að gera slatta. Ég náði samt í passamyndirnar mínar í gær fyrir student ID cardið mitt og þótt ég segi nú bara sjálf frá þá eru þetta bestu passamyndir sem ég hef séð af mér! Enda notaði ég skólablaðsmyndina Glottandi Í dag fer ég svo í klippingu. Ég var komin að þeirri niðurstöðu að ég ætlaði ekki að gera neitt róttækt en samt er það svo freistandi Óákveðinn hvað á ég að gera? Ég hata þessa aðstöðu. En jæja, ætli það komi ekki bara í ljós hvað ég geri. Ég er líka að fara á nýja hárgreiðslustofu, kannski hafa þær nýjar hugmyndir Brosandi 

En jæja..ætla að fara að taka pensilínið..

kv Heiða


crazyness!

Aðeins 4 daga4 dagarr!!! OMG VÁ  CRAZY ÍÍÍ ARGH..vá ég veit ekki hvað ég á að segja! ég er núna byrjuð að hlakka meira til Brosandi það er samt svo mikið sem ég þarf að gera að ég get varla hugsað um þetta. Það eru bara endalausir hlutir, t.d. kaupa hina og þessa hluti, fara í bankann, fara í sporthúsið, fara í klippingu, læra latínu og fullt fleira. Ég þarf líka að fara til læknis..noooo..ég held nefnilega að ég sé að fá hálsbólgu! ARGH.. og alltaf þegar ég fæ hálsbólgu fæ ég heiftarlegan hósta og get ekki sofið og allt í fokki. Þess vegna ætla ég bara strax til læknis og fá lyf Brosandi 

Jæja, það er bara ekkert annað spennandi að gerast hjá mér, bara crazy mikið að gera! Dagurinn í gær var fullbókaður og ég náði ekki einu sinni að skjótast í Smáralind til að sækja passamyndirnar mínar. Eftir vinnu fór ég beint til latínukennarans, svo í sporthúsið og þaðan heim í sturtu og svo strax út að borða með stelpunum. Þegar ég kom heim var ég auðvitað uppgefin. Ég horfði samt smá á CSI og svo fór ég bara að sofa.

Ég bíst við að næstu dagar veri álíka en svo fer ég bara út! Ákkúrat þegar það á að koma ágætt veður hérna á Íslandi. En jæja..ég er bara farin að læra.

kv Heiða

P.S. E-n tímann áður en ég fer út ætla ég að setja inn e-r myndir hérna inn, svona svo þið munið hvernig ég lít út Ullandi


5 dagar í vitleysuna

5 dagar!hæ hó jíbbí jei og jíbbí jei það er kominn 19 júní! Sem þýðir að það eru aðeins 5 dagar í veitleysuna í barcelona! Hver trúir því? allavega ekki ég!

það var gert margt og mikið um helgina. Á föstudaginn fór ég á MR tebó og skemmti mér bara ágætlega. 17. júní var ég að vinna yfir daginn. Eiginlega ekkert að gera, sérstaklega á meðan landsleikurinn var. Ég held að það hafi komið um 5 manns á meðan. Þegar ég var búin að vinna brunuðin ég og Bára heim í sturtu og svo beint niðrí bæ. Sáum Svitabandið spila og svo löbbuðum við bara um í leit að fólki en hittum eiginlega engann. Það var allt morandi í smápíkum sem héldu greinilega að þær væru á Flórída eða á e-m jafn fáránlegum stað því þær voru allar í snípsíðum pilsum og aðeins undirfötum undir. Ég meina, þetta virkar sums staðar eins og í Flórída, en ekki á íslandi að kvöldi til þegar það eru skúrir. Það er bara ekki fallegt stelpur! En allavega, þegar við vorum búnar að fá nóg af kuldanum stofnuðum við til partýs hjá betu og buðum fullt af fólki en þar sem ákveðnir einstaklingar (þið vitið hver þið eruð) beiluðu, varð ekkert meira úr þessu en ágæt spjalldrykkja. Ég keytði svo stelpurnar og Dodda niðrí bæ og hitti aðeins Gassa. Við rúntuðum smá og á endanum fór ég bara heima að sofa og svaf út eina skiptið þessa vikuna. Kíkti til ömmu og svo bara í vinnuna.

Ég er búin að vera mjög dugleg í dag. Er búin að skrifa alveg 4 enskustíla og á eftir að gera fleiriBrosandi Þótt ég hafi farið vitlaust fram úr rúminu of mætti of seint í vinnuna.

en jæja, er að fara í mat.

kv Heiða

 


8 dagar

Jæja..nú eru bara 8 dagar í Barcelona. Það þýðir að þið þurfið að þola þessi ómótstæðilegu vinnublogg í 8 daga. Eftir það draumurkoma vonandi spennandi Barcelona blogg Brosandi Ég trúi ekki að það sé svona stutt í þetta! Mér finnst ég eiga eftir að gera alveg full áður en ég fer. Bráðum fer ég að fá drauminn minn. Það er nefnilega þannig að svo langt sem ég man þá hefur mig alltaf dreymt ákveðinn draum þegar ég er að fara til útlanda. Hann gengur í stórum dráttum út á það að ég er komin út og þá fatta ég allt í einu að ég gleymdi að pakka niður! þetta er ein af mínum verstu martröðum Fýldur 

En jæja, höfum þetta bara stutt.

kv Heiða


Pff

Áðan var mikið að gera hérna í OR því það var einhver háspennubilun. En núna er ekkert að gera og mér leiðist..as usual.

Ég tók upp á því að fara á google og skrifa Aðalheiður. þegar ég skoðaði myndirnar komu 2 af 479 af mér! báðar ljótar. Ein frá skrekk í grunnskóla og ein úr Sveinbjörgu. Þetta er ekki alveg nóég?gu gott Óákveðinn Svo þegar ég skrifaði bara Heiða, því ég er nú oftast kölluð það kom EINGIN mynd af 840 af mér! Ein af myndunum var þessi hérna. Mér finnst hún bara ekkert líkjast mér! pff..maður á ekkert að treysta þessu google smoogle.

 

En já..ég ætla að fara að leggja annan kapal.

kv. Heiða 


mega úber dúber þreytt!

vá, ég er svo þreytt! þegar ég koma heim úr Orkuveitunni í gær gat ég verið heima hjá mér ísvefn rúmlega klukkutíma, þá þurfti ég að fara í hina vinnuna, Aktu taktu. Þar sem ég var þreytt fyrir var skelfilegt að vera í Aktu taktu og þar að auki var alvg slatti að gera, nema þegar ítalía og Gana voru að spila, þá datt smá niður. ég kom heim dauðþreytt á miðnætti voru frænka og frændi frá Akureyri heima og ég var auðvitað kurteis og vakti á meðan þau voru. Svo endaði það með því að ég sofnaði um tvöleitið. Ekki alveg nógu gott!

en jæja, enda þetta tilgangslausa blogg og fer að læra latínu..

kv. Heiða


Nada para hacer aquí en el trabajo!

Sí es verdad. No quiero estar aquí ahora, qiero estar en Barcelona. Por que hablo en espanol.

Vá æeg get ekki hætt að hugsa um Barcelona! ég er farin að hugsa á spænsku, svona smá frí frá latínu Brosandi það er samt svo fínt að vera í þessarri vinnu þegar maður þarf að læra. Líka af því að við eru  of margar þarf ég ekki einu sinni að vera á síma og er bara að læra! Það er eiginlega bara gott að ég þurfi að læra, annars væri ég ekki að gera neitt og það væri hræðilegt!! OMG, vil ekki einu sinni hugsa um það Óákveðinn 

en jæja, þetta var stutt annað blogg dagsins, vonum bara að þetta verði seinasta blogg dagsins. Kannski ég fari bara að blogga á cerasum síðuna. Sem er btw www.cerasum.blog.is kíkið endilega á hana og lesið bloggin mín um allt og ekkert Ullandi

Ætla að kíkja á matseðil vikunnar..mmmm..

kv. Heiða


margt og mikið

Ég sit hérna í Hófíar tölvu og í símanum hennar. Er bara að nýta tímann meðan ég hef eitthvað pláss Ullandi Er byrjuð að læra latínu og þetta leggst bara vel í mig. Ég held ég meiki þetta alveg, verð bara að læra jafnt og þétt. Ég þarf líka að redda mér einhverjum kennara til að kenna mér. Ef þið vitið um einhvern latínukennara sem gæti kennt mér endilega látið mig vita Glottandi

Svo eru minna en 2 vikur í Barcelona, bara 12 dagar!! Það styttist óðfluga í þetta og ég verð alltaf spenntari og spenntari, á endanum spring ég bara því ég get ekki orðið spenntari Brosandi 

Ég er að vinna í ALLAN dag. Ég fer héðan og beint í Aktu Taktu. Vá hvað ég á eftir að vera þreytt á morgun. En ég meina hvað gerir maður ekki fyrir meiri pening í gjaldeyri Gráðugur

Í gær var svo opið hús í MR og við skólablaðsstelpurnar vorum að dreifa skólablöðum til tilvonandi nýnemum. Það vildu samt fáir fá blöð þar sem flestir eiga blöð heima hjá sér því þau eiga systkin og/eða foreldri úr MR og við fengum nokkrum sinnum svarið "nei takk, við eigum þrjú heima" Brosandi

En jæja, ég er búin að tala um allt og ekkert. Ætla að halda áfram að skipuleggja og dreyma um Barcelona Glottandi

kv. Heiða


Crowded á símanum

Mér líður soldið eins og ég sé fyrir hérna í OR. Svo ersímacrowd mál með vexti að það eru 4 básar, semsagt pláss fyrir 4 símadömur en núna er Inger, fjórna símadaman kom í vinnuna en hún er búin að vera veik. Ég var alltaf á símanum hennar en þar sem hún er komin aftur hef ég engan síma og enga tölvu. Ég á mér engan samastað. Þess vegna er ég búin að "stela" básnum hennar Hófí. Hún skrapp til að skoða e-a íbúð en núna er hún komin og labbar bara á milli og talar við stelpurnar þar sem ég er í básnum hennar! Þetta getur ekki haldið svona áfram Óákveðinn Kannski endar þetta eins og hérna á myndinni!

Ég er búin að nýta tímann hér vel. Ég er komin langt með listann minn yfir hvað ég þarf að gera og hvað ég þarf að taka méð mér til Barcelona. Ég fæ einnig latínubækurnar í dag þannig að lærdómurinn hefst í dag. Ég er ekki frá því að ég hlakka soldið til að læra latínu. Ég veit að þetta hljóma nördalega en þetta er e-ð svo nýtt. Ég hef aldrei lært eitthvað líkt þessu...eða kannski er ég bara nördi Ullandi hehe

en jæja..ætla að fá mér meira af heitu kakói sem er svo mjög gott hérna Brosandi

kv Heiða


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Aðalheiður Dögg Finnsdóttir
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir

Nýjustu myndir

  • Ritstjórn Skólablaðsins
  • Grímuball
  • ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband