Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
29.6.2007 | 14:49
...
FÖSTUDAGUR!! :) jebb, ég er ánægð yfir því að það sé föstudagur í dag og fríhelgi framundan .. újeee :) Ég sé fram á góða helgi...Grillveisla, frí, ein heima, útborgun, gott veður .. og já frí :)
Ég sit núna niðrí móttökunni í Orkuveitunni, er að leysa af í tvær vikur. Svona er maður orðinn pró..getur bara hoppað úr einu starfi í annað eins og ekkert sé! Þetta er mjög þægilegt, lítið af fólki að koma svona yfir hásumarið..nema bara borgarstjórinn og frægir fréttamenn og sonna ;)
Á þessu starfi hérna niðri er ég bara mjög klár í tölvum! ég er að kenna konunum hérna alls konar skemmtilega hluti sem ég lærði í 5.bekk..í grunnskóla. Þær eru voða mikið krútt :) Ein á 58 ára afmæli á þriðjudaginn :)
Það er bara eitt ömurlegt við þessa vinnu..ég er inni allan daginn en sé rosalega vel hvað það er gott veður úti því ég sit hjá glervegg sem er stærri en húsið mitt. Ég er bara að pæla að fara í kaffi og setjast smá út :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2007 | 10:26
...
jæja, þá er ég loksins komin aftur í vinnuna. Er búin að vera veik í tvo daga :S Það var ekki gaman :(
Ég skellti mér í útilegu um helgina..samblanda af fjölskyldu og vinkonum..skemmtileg blanda :) Við kíktum á hátíð Trésmíðafélags Reykjavíkur sem var haldið á Stóra Hofi. Brenna, hlöðuball, ofnæmi og áfengi ... ásamt kollhnísakeppni :) Þetta var svakaleg útilega, sé ekki eftir að hafa farið.
Ég átti að vinna sunnudagskvöldið og mætti veik á svæðið. Ekki nóg með það heldur datt ég inni í kompu..ekki gott..og ekki hætti vesenið þar heldur skar grillarinn okkar sig svo illa að hún þurfti að fara uppá slysó, grillarinn okkar sem talar enga íslensku og nánast enga ensku :S Ég get ekki sagt að þetta hafi verið skemmtilegasta vakt í geymi :(
Núna er ég bara í vinnunni að láta mér leiðast, lesa mbl og sonna :) þar sá ég frétt um að rannsóknir bentu til að elstu systkini væru með hærri greindarvísitölu heldur en yngri systkinin...sem eru góðar fréttir fyrir mig þar sem ég er elsta systkini :)
kv Heiða
PS Til hamingju með afmælið Þórunn mín :*
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 13:26
...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2007 | 15:24
...
jæja, þá er ég loksins búin að fara í klippingu. Ég get nú sagt að ég sé nokkuð breytt þar sem ég er komin með svkalegan topp :) allar gömlu konurnar hér í OR umkringja mig og dást að hárinu, það er nú ekki slæmt :)
Ég fann hljómsveit á mæspeis í dag sem heitir Sprengjuhöllin. Ég komst svo að því að einn í hljómsveitinni vinnur hér í starfsmannahaldi í or OG þeir eru með lag um hana Heiðu :D ég og Heiða B hérna í þjónustuverinu erum yfir okkur hrifnar af þessu frábæra lagi að okkar mati :) endilega tjékkið á því á myspace.com/sprengjuhollin, lagið mitt heitir Verum í sambandi :) ég get ekki talið hversu oft ég er búin að hlusta á það í dag :P
Núna er ég búin með fata og skó kvótann minn fyrir mánuðinn. Hef sjaldan verslað jafn mikið af fötum á svo stuttum tíma :P ég á rétt svo fyrir djamminu framundan :S
jæja, ætla að fá mér vöfflu :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2007 | 12:42
...
ég er búin að fá mér barn!
Ég er byrjuð að styrkja litla stelpu í gegnum abc barnahjálp. Hún er 6 ára og heitir Aqsa Boota. Hún er frá Pakistan og er voða sæt :) Hún á 6 systkini og hún býr með þeim og foreldrum sínum í tveggja herbergja húsnæði í Farooqabad-s. Með minni hjálp fær hún læknisaðstoð, mat og skólagöngu, sem er mjög gott þar sem draumur hennar er að verða kennari :)
ég mæli sterklega með að allir styrki svona barn :)
E-ð annað að frétta..ég var á námskeiði áðan í vinnunni. Frekar mikið leiðinlegt, ég á núna að geta svarað fyrir gagnaveituna, sem er ljósleiðarinn. Það er fáránlega flókið :S En ég meina..þetta reddast ;)
jæja jæja...ætli maður fari ekki að vinna :)
Adiós amicos..hasta luego ;)
Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2007 | 10:46
...
Yes yes yes..aðeins 57 dagar í Tene! J það styttist óðfluga í útskriftaferð aldarinnar. Ég er líka byrjuð að finna smjörþefinn af henni þar sem ég er byrjuð að djamma allar helgar, þrátt fyrir að það sé vinnuhelgi. Eins og ég gerði núna. Enda er ég algerlega uppgefin á mánudegi :p
En as usual er ég alltaf að leita að e-u skemmtilegu á netinu. Ég er búin að lesa mikið af misjafnlega fyndnum bröndurum og hér er brandari dagsins af e-i síðu;
Two bats are hanging in their cave. One turns to the other and says, "Oh, I'm really thirsty for some fresh blood."
The other bat is amazed and says, "Well, its a bit late. Daylight is almost here, and we can't be exposed to any light - you know we'll die." "Yeah, I know," says the first bat, "but I'm really starving for it."
So he flies out of the cave and returns five minutes later with blood dripping from his mouth.
"You lucky thing. Where'd you find blood that quick?" asked the second bat.
"You see that tree over there in the distance?" mumbled the bat, his mouth full of blood.
"Yeah, I think I do!"
"Well, I didn't."
Hahahahahaha..vá ég er orðin svo súr á því að hanga í tölvunni allan daginn. Ég þarf að kaupa mér bók eða e-ð :P
Ég er líka orðin svaka fróð um margt skemmtilegt eins og í Hollandi er verið að búa til duft sem breytir vatni í alcohol! það á víst að vera með ávaxtabragði og bragðast eins og breezer. Það er alveg mega kúl :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 14:23
...
jæja..nú þegar ég er aftur byrjuð í Orkuveitunni er nánast nauðsynlegt að byrja að blogga aftur.
Ég er núna stödd í þjónustuverinu sem er mun erfiðara en skiptiborðið. Ef ég geri e-a skyssu gæti Jón út í bæ þurft að borga reikningana hennar Gunnu í Mosfellsbæ..þannig að það er bara að passa sig ;) Það er líka skemmtileg nýjung hérna í OR. Það er stórt plasma sjónavarp hérna á veggnum og alltaf stillt á stöð 2 þannig að ef mér leiðist get ég bara horft á eðal spænskar sápuóperur eða hljóðlausar hádegisfréttir :)
Á svo ekki að skella sér í útilegu í sumar í þessu góða sumarveðri? :) Ég er að fíla Barcelona fílinginn þegar maður fer út af skemmtistöðunum í þessarri birtu..minnir mig á ströndina kl 7 að morgni til í skítakulda eftir nokkra sex on the beach ;) :P
En núna verð ég að kveðja..var að fá endursendan póst sem þarf að athuga :)
kv Heiða þjónustufulltrúi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar