Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
21.1.2007 | 22:33
...
Jeg er so meget tröt! jebb, ég er búin að vera niðrí skóla í allan dag því æfing fyrir söngkeppnina fór fram. Ég er nú bara nokkuð sátt með gang mála og ég hlakka bara til að sjá hvernig þetta kemur allt saman út á fimmtudaginn :)
ég er alveg að hunsa lærdóminn, svefn og annað :S Ég veit ekki hvernig ég á eftir að meika þessa viku. Ég verð pottþétt veik á föstudaginn, alveg líkt mér :P
Jæja, ég ætla að skrifa spænskuritgerðina mína :)
kv Heiða Dögg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 22:48
...
sælirnú!
Klukkan er núna að verða 11 og ég var bara að koma heim úr skólanum eftir laaangan tíma í símhringingar vegna söngkeppninnar. Núna er þetta loksins komið á alvöru skrið og ég er ekki lengur stressuð upp fyrir haus :) Ég má ekki segja strax en dómararnir og kynnirinn eru mjög fær ;)
Vá, ég er svo þreytt að ég get varla séð á tölvuskjáinn..ég held að það ætti að segja mér e-ð :P Verð samt að klára ísl.bókina mína, Indjáninn eftir Jón Gnarr, sem er btw alveg ágæt bók, svona bók eins og ég vil lesa; tveggja bls kaflar og ekkert orð sem ég skil ekki :)
Jæja..góða nótt..zzzzzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 19:47
...
Jæja...er maður ekki bara á fullu núna! Söngkeppnin nálgast óðfluga, markaðsnefnd Herranætur að byrja og Háskólakynningarnar að fara á skrið..svo er auðvitað alltaf e-ð að gera í lærdómnum :P
Ætli ég hafi ekki líka bara verið að gera góða hluti í SingStar niðrí Cösu í dag??? hehe...það vildi enginn vera með þannig að ég neyddist til að syngja heil 3 lög þar sem þetta var á vegum skemmtinefndar! ég vann btw í einu þeirra sem teljast þarf sigur fyrir mig :P
Ég hef líka komist að því að ég er mjög góð í alls kyns tæknimálum...fyrir slysni :P Ég lagaði ísvélina niðrí vinnu með því að prufa að snúa einum takka og svo í gær var ég taka playstation úr sambandi og þurfti með því að færa allt settið...eftir það hefur sjónvarpið verið miklu skýrara...hvort sem það er út af nýrri staðsetningu eða vegna þess að það er laust við playstation...það hef ég ekki hugmynd um, ég veit bara að ég lagaði það :P ;) Ég bíð bara eftir að ég lagi e-n annan tæknihlut fyrir slysni :)
Anyhow...ætlaði bara að láta heyra í mér :)
kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar