...

jæja, þá er ein önnur útilegan yfirstaðin!  Það er nú saga að segja frá henni...

Sagan byrjar eiginlega þegar við (ég, Gerður, Bára, Katrín og Ásta) vorum komar í Varmaland, búnar að tjalda og Gerður búin að stíga í e-t viðurstyggilegt brúnt ógeð (flestir ættu að fatta hvað ég er að tala um). Við stóðum bara í rólegheitunum fyrir framan tjaldið að spá hvar við ættum að setja upp borðið þegar e-r leiðinleg kona kom og sagði spurði hvort að við værum á ættarmótinu! Við vissum ekkert hvað hún var að tala um og neituðum því, þá sagði hún að það væri skilti sem það stæði á og labbaði í burtu...bíddu var verið að reka okkur í burtu eða???

Við vorum ekki sáttar og fórum að rannsaka málið..við fundum ekkert skilti sem gaf til kynna að það væri ættarmót á svæðinu. Þá fórum við að pæla hvort það væri allt tjaldsvæðið eða hvað...við gengum þá upp í sundlaug og ætluðum að spyrja kallinn sem maður borgar hjá um málið. En hann var hvergi að sjá en hann var víst væntanlegur. Á meðan við biðum eftir honum bættust alltaf feiri og fleiri af ættarmótinu í hópinn sem biðu og við komumst að því að þau væru að fara í mat í þessu húsi. Við vildum ekki bíða með þessu fólki þar sem okkur elið mjög óvelkomnar á svæðinu og ákváðum því að halda á leið og finna nýjan stað til að tjalda.

Áætlunin var að tjalda e-r staðar úti í óbyggðunum, þótt það sé ekki leyfilegt. Við ætluðum bara að vera svo útsmúgnar að láta engan sjá okkur :) Þar sem við erum stelpur ákváðum við að fara í smá ránsferð á klósettin í Varmalandi til að stela smá klósettpappír :P Við stukkum inn og fórum á klóstið hver á fætur annarri og komum ýmist með stærri brjóst eða ólettar út :) ... svo héldum við á leið að finna stað þar sem enginn myndi sjá okkur.

En það gekk brösulega. Það var alltaf spurning um hvernig við myndum fela bílana og sonna. Á endanum vorum við komnar á annað tjaldsvæði. Frekar lítið en mjög sætt. Við vildum vera vissar um að við værum velkomnar og fórum inn þar sem á að borga og spurðum hvort við mættum ekki örugglega tjalda þarna...jújú..það var sjálfsagt! Þetta byrjaði vel á þessum nýja stað, á átti eftir að batna :)

Við byrjuðum að tjalda en það gekk ekki vel þar sem við komum hælunum ómögulega niður þar sem jarðvegurinn var allur í steinum. Þá kom eldri maður sem var í húsbíl rétt hjá okkur og rétti okkur hamar :) Með honum gátum við lokið við að tjalda þessu fallega mannvirki :) þá kom vandamálið að koma lofti í vindsængurnar þar sem við vorum með 2 vindsængur ssem kröfðust pumpu en engin hafði tekið pumpu með! Þá kom kona nokkur sem var í tjaldi rétt hjá okkur og lániði okkur pumpu, nokkru síðar kom maðurinn hennar og lánaði okkur betri pumpu! hehe...

Með hjálp fólksins á svæðinu vorum við tilbúnar að elda matinn :) við byrjuðum að drekka og borðuðum dýrindis útilegumat beint af einnota grillinu :) Seinna um kvöldið var okkur frekar kalt og settumst inn í bíl til að hlýja okkur. Þá vorkenndi gamla konan í húsbílnum okkur og bjó til handa okkur heitt súkkulaði og setti í hitabrúsa fyrir okkur! mmm...það var gott síkkulaði :)

Svo fórum við bara í háttinn. Þegar við vöknuðum næsta dag borðuðum við morgunmat, pökkuðum saman, þrifum hitabrúsan og héldum heim á leið :)

Þetta var ein besta útilega sem ég hef farið í :) Takk fyrir góða skemmtun stelpur!

kv Heiða


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HAHAHA! vá þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert( þrátt fyrir smá leiðindi frá nágrannahundinum...) hahaha, það var samt bara fyndið! líka þegar við vorum að krassa ættarmótið *hóst* " jú við erum dætur Þorsteins af Mýrum" hahaha, vá ég hefði heldur ekki trúað því að allir myndu dekra svona við okkur á hinu staðnum...  ég hef varla hlegið jafn mikið í langan tíma og ég hlakka til að skoða allar myndirnar!:D Takk fyrir frábæra ferð!:D

Gerður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Aðalheiður Dögg Finnsdóttir
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir

Nýjustu myndir

  • Ritstjórn Skólablaðsins
  • Grímuball
  • ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband