31.7.2006 | 08:54
Helgin
Jæja, þetta var viðburðarík helgi. Ég ætla bara að byrja á byrjuninni.
Á föstudaginn var ég og Benni að skutlast til að ná í bílinn hans. Ég lenti á eftir e-m bíl sem keyrði frekar hægt, hélt að þetta væri bara e-r gamall kall. Bíllinn beygði skyndilega inná strætistoppistöð og ég helt bara að hann væri að hleypa e-m út eða hvað hvað sem maður gerir þarna. En allt í einu var bíllinn komin beint fyrir framan mig hornrétt á mig! Ég gat ekki annað en klesst beint á hliðina á bílnum. Þetta var minn fyrsti árekstur. Við keyrðum inn á strætóstoppistöðina til að skoða skemmdir ofl. Manneskjan sem ég hélt að væri e-r gamall kall reyndist vera 87 módel gaur og tveir vinir hans. Þeir eru víst utan að landi og voru villtir. Ég var í algeru shocki! ég vissi ekki einu sinni hvar ég var, ég hringdi í 112 og þegar gaurinn spurði mig hvar við vorum spurði ég gaurana sem byrjuðu að fletta uppí símaskrá (btw það er ekki góð hugmynd að spurja e-a gaura utan að landi hvar í RVK maður sé) og komu upp með svarið Gróugata eða e-ð fáránlegt því við vorum nú bara stödd á Bústaðaveginum :P Bíllinn er frekar mikið skemmdur, löggan þurfti að taka stuðarann af svo ég gæti keyrt heim og læti. Það er hægt að keyra bílinn en erfitt að beyja til vinstri og hann er bara mjöög ljótur :S Þetta tók allt saman frekar mikinn tíma því ég sagði fyrst vitlausa götu og sonna. Ég held að táin mín hafi fengið smá nervous breakdown því hún fékk krampa alla leiðina heim :P
Um kvöldið var ég ein heima þannig að ég bauð e-u fólki heim og það endaði bara sem e-ð eldhúspartý. Við kíktum e-ð niðrí bæ en þar sem allir voru að deyja úr e-u, kulda, illt í fótunum, veikindum...fórum við fljótlega aftur heim.
á laugardeginum var ég að vinna, soldið þreytt en allt í lagi samt. Um kvöldið var svo MR bjórkvöld. Við höfðum ekki farið á MR djamm mjög lengi og hlakkaði okkur soldið til :) Þegar ég og Bára mættum á svæðið var enginn þar nema stjórnin og grúbbíur þeirra, þ.e. við vorum fyrstar! Það var ekki alveg nógu gott en svo fór fólk að tínast inn. Þetta var alveg fínt tebó fannst mér, gaman að hitta alla :) Eftir tebóið löbbuðum við niðrí bæ og tókum taxa þar.
Ég mætti svo eldhress í vinnuna í gær. Ég get ekki sagt það sama um aðra :P Við lifðum þetta af og þegar ég kom heim naut ég þess að liggja bara í rúminu..þangað til það kom matur. Í gærkvöldi fór ég og Bára á Sigurrósar útitónleikana. Soldið langir en samt fínir :)
Ég er dauðþreytt núna og er orðin meira veik :S ég hlakka bara til næstu helgar :D Veit ekki enn hvað á að gera en það kemur bara í ljós. En allavega..
That's all
kv Heiða
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hahaha, já þetta var gaman! ég sá aldrei bílinn:S en ég er bara orðin 10x veikari, ætli það séu MR-ingarnir?
Gerður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2006 kl. 16:39
Haa...aðrir hverjir?
Cerasum, 2.8.2006 kl. 23:22
jæja... eitthvað plan fyrir helgina?
Katrín Hjaltadóttir, 3.8.2006 kl. 19:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.