Dos dias...

vá, þetta er svo sorglegt. Ég er búin að kveðja alla nema mömmu Fýldur Þegar ég kem úr vinnunni verða þau bara farin og ég sé þau ekkert fyrr en ég kem heim frá Barcelona, þau ætla nefnilega að ná góðu tjaldsvæði á Stóra Hofi því um helgina er Jónsmessuútilegan. Ég hitti bara mömmu í hádeginu til að fara í banka og svo er þetta bara búið..lost case! Adios mi familia! þá get ég nú samt pakkað í friði, Leó verður ekki alltaf skríðandi ofan í ferðatöskuna og tínandi allt úppúr Brosandi Ég ætla svo að fá mér eins mikið af íslenskum mat áður en ég fer. SS pylsur, ost, ABT mjólk og e-ð fleira sem mér dettur í hug seinna.

Ég er búin að vera mjög dugleg að taka pensilínið. Ég er ekki búin að gleyma neinni töflu og ég hef getað kingt öllum töflunum Brosandi Heiða dugleg!

Ég er orðin svo stressuð yfir því að gleyma e-u. Ég er alltaf að kíkja yfir listann minn yfir það hvað  ég ætla að taka með mér og bæta á hann. Ég held samt að ef ég gleymi e-u verði það ekkert mikilvægt Brosandi

Vá ég lenti í svo vandræðalegu í gær. Ég fór niðrí Myndval í mjóddinni til að ná í myndframköllumir úr framköllun. Ég vissi ekki alveg á hvaða nafni þetta var því að mamma downloadaði forritinu, pabbi skráði e-mailið en ég var að framkalla, þannig að ég varð að gefa þeim upp 3 nöfn og honum fannst það voða asnalegt.  Svo leitaði hann og leitaði og leitaði og var að verða vandræðaleg og hugsaði hvort ég væri ekki í réttu búiðinni! Svo allt í einu sagði kallinn "sagðiru ekki kristín Einars?" og ég bara "jú" og hélt að hann væri búinn að finna þetta..en neeei. þá sagði hann "ég man eftir þessu nafni. Þetta eru myndirnar sem eyðilögðu næstum kerfið hjá okkur!" og ég varð ábyggilega fjólublá í framan af skömm. Hann bullaði svo e-ð á tæknimáli og ég kinnkaði bara kolli. Þetta endaði svo með því að ég þurfti að skýra myndirnar aftur og senda. Hann ætlaði svo að hringja næsta morgunn, semsagt núna og ég bíð bara eftir símtali þar sem ég mun annað hvort heyra "þetta er komið" eða "argh, myndirnar þínar eyðilögðu kerfið!" I´ll keep you posted Glottandi

jæja, ætla að gera annan enskustíl

kv Heiða


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Aðalheiður Dögg Finnsdóttir
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir

Nýjustu myndir

  • Ritstjórn Skólablaðsins
  • Grímuball
  • ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband