21.6.2006 | 09:44
tres dias
Vá..3-2-1! Bara 3 dagar eftir. Það eina sem getur eyðilagt þetta er ef ég verð veikari en ég er. Ég er nefnilega komin með hálsbólgu. Alltaf þegar ég fæ hálsbólgu fæ ég alltaf svo mikinn hósta að ég get ekki sofið á næturna
Þannig að ég fór í gær á læknavaktina og fékk mér smá pensilín. Ég skil ekki alveg hvernig ég get verið hérna í vinnunni, röddin er alveg í fokki. Ég þarf alveg að reyna á mig svo það heyrist e-ð! það er ekki alveg nógu gott. Ég hlakka samt alveg hrikalega til laugardagsins...þá fer ég loksins út! Allt er á seinasta snúningi. Á ennþá eftir að gera slatta. Ég náði samt í passamyndirnar mínar í gær fyrir student ID cardið mitt og þótt ég segi nú bara sjálf frá þá eru þetta bestu passamyndir sem ég hef séð af mér! Enda notaði ég skólablaðsmyndina
Í dag fer ég svo í klippingu. Ég var komin að þeirri niðurstöðu að ég ætlaði ekki að gera neitt róttækt en samt er það svo freistandi
hvað á ég að gera? Ég hata þessa aðstöðu. En jæja, ætli það komi ekki bara í ljós hvað ég geri. Ég er líka að fara á nýja hárgreiðslustofu, kannski hafa þær nýjar hugmyndir
En jæja..ætla að fara að taka pensilínið..
kv Heiða
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessuð.
Skemmtu þér vel úti ;)
heyrumst;*
Herdís (IP-tala skráð) 21.6.2006 kl. 15:42
Heiða mín... róleg að telja niður daga.. þú veit að þá líður þessi blessaði tími mikið hægar ;)
meina aðeins 29dagar hjá mér eftir :P
Garðar Frændi
Garðar (IP-tala skráð) 21.6.2006 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.