19.6.2006 | 12:16
5 dagar í vitleysuna
hæ hó jíbbí jei og jíbbí jei það er kominn 19 júní! Sem þýðir að það eru aðeins 5 dagar í veitleysuna í barcelona! Hver trúir því? allavega ekki ég!
það var gert margt og mikið um helgina. Á föstudaginn fór ég á MR tebó og skemmti mér bara ágætlega. 17. júní var ég að vinna yfir daginn. Eiginlega ekkert að gera, sérstaklega á meðan landsleikurinn var. Ég held að það hafi komið um 5 manns á meðan. Þegar ég var búin að vinna brunuðin ég og Bára heim í sturtu og svo beint niðrí bæ. Sáum Svitabandið spila og svo löbbuðum við bara um í leit að fólki en hittum eiginlega engann. Það var allt morandi í smápíkum sem héldu greinilega að þær væru á Flórída eða á e-m jafn fáránlegum stað því þær voru allar í snípsíðum pilsum og aðeins undirfötum undir. Ég meina, þetta virkar sums staðar eins og í Flórída, en ekki á íslandi að kvöldi til þegar það eru skúrir. Það er bara ekki fallegt stelpur! En allavega, þegar við vorum búnar að fá nóg af kuldanum stofnuðum við til partýs hjá betu og buðum fullt af fólki en þar sem ákveðnir einstaklingar (þið vitið hver þið eruð) beiluðu, varð ekkert meira úr þessu en ágæt spjalldrykkja. Ég keytði svo stelpurnar og Dodda niðrí bæ og hitti aðeins Gassa. Við rúntuðum smá og á endanum fór ég bara heima að sofa og svaf út eina skiptið þessa vikuna. Kíkti til ömmu og svo bara í vinnuna.
Ég er búin að vera mjög dugleg í dag. Er búin að skrifa alveg 4 enskustíla og á eftir að gera fleiri Þótt ég hafi farið vitlaust fram úr rúminu of mætti of seint í vinnuna.
en jæja, er að fara í mat.
kv Heiða
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá hvað ég hlakka til:D
17.júní hljómar ekkert svo spes hjá þér hehe, einmitt eins og maður bjóst við... smágrísir niðri í bæ í snípsíðum pilsum, alveg típíst! Það var geeeðveikt hjá mér og Daða og Ástu og hinum í *kjötinu*, sýni þér myndir af stemmaranum bráðum;) Þú hefðir bara átt að koma með;)
Katrín Hjaltadóttir, 19.6.2006 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.