12.6.2006 | 08:49
margt og mikið
Ég sit hérna í Hófíar tölvu og í símanum hennar. Er bara að nýta tímann meðan ég hef eitthvað pláss Er byrjuð að læra latínu og þetta leggst bara vel í mig. Ég held ég meiki þetta alveg, verð bara að læra jafnt og þétt. Ég þarf líka að redda mér einhverjum kennara til að kenna mér. Ef þið vitið um einhvern latínukennara sem gæti kennt mér endilega látið mig vita
Svo eru minna en 2 vikur í Barcelona, bara 12 dagar!! Það styttist óðfluga í þetta og ég verð alltaf spenntari og spenntari, á endanum spring ég bara því ég get ekki orðið spenntari
Ég er að vinna í ALLAN dag. Ég fer héðan og beint í Aktu Taktu. Vá hvað ég á eftir að vera þreytt á morgun. En ég meina hvað gerir maður ekki fyrir meiri pening í gjaldeyri
Í gær var svo opið hús í MR og við skólablaðsstelpurnar vorum að dreifa skólablöðum til tilvonandi nýnemum. Það vildu samt fáir fá blöð þar sem flestir eiga blöð heima hjá sér því þau eiga systkin og/eða foreldri úr MR og við fengum nokkrum sinnum svarið "nei takk, við eigum þrjú heima"
En jæja, ég er búin að tala um allt og ekkert. Ætla að halda áfram að skipuleggja og dreyma um Barcelona
kv. Heiða
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.