Færsluflokkur: Bloggar
31.7.2007 | 15:24
...
jæja..ég nenni ekki að blogga meira þetta sumarið. Hver veit nema ég komi með e-ð óvænt blogg í vetur! hehe..efast samt
Ég segi bara gleðilegt sumar...á meðan það varir enn :) og sjáumst næsta sumar, hress og kát!
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2007 | 13:36
...
jæja..nú eru aðeins 13 dagar í Tene!! Það þýðir líka að sumarið fer bráðum að vera búið sem hefur í för með sér að þetta gífurlega skemmtilega sumarblogg dettur niður! Ég trúi ekki að sumarið hafi verið svona fljótt að líða...en það er samt margt gott eftir...seinasti vinnudagurinn, verslunamannahelgin, Tene....
Núna fara foreldrarnir að verða búnir með fríið sitt sem leiðir af sér að ég fer ða hætta að vera svona mikið ein heima ... það er voðalega þægilegt að geta haft bílinn og húsið útaf fyrir sig :)
Vá...svo verð ég ein af "stóru" krökkunum í skólanum...seinasta menntaskólaárið mitt :( maaan..það á bara eftir að vera skemmtilegt. Tóm skemmtun frá 8-4!!! vúhú...nei, hvern er ég að plata, ekki mig allavega! Þetta á eftir að vera púl og erfiði með einstökum skemmtunum hér og þar :)
En ég ætla að hætta að babbla út í eitt og þykjast vera að vinna e-ð :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2007 | 09:17
...
jæja, þá er ein önnur útilegan yfirstaðin! Það er nú saga að segja frá henni...
Sagan byrjar eiginlega þegar við (ég, Gerður, Bára, Katrín og Ásta) vorum komar í Varmaland, búnar að tjalda og Gerður búin að stíga í e-t viðurstyggilegt brúnt ógeð (flestir ættu að fatta hvað ég er að tala um). Við stóðum bara í rólegheitunum fyrir framan tjaldið að spá hvar við ættum að setja upp borðið þegar e-r leiðinleg kona kom og sagði spurði hvort að við værum á ættarmótinu! Við vissum ekkert hvað hún var að tala um og neituðum því, þá sagði hún að það væri skilti sem það stæði á og labbaði í burtu...bíddu var verið að reka okkur í burtu eða???
Við vorum ekki sáttar og fórum að rannsaka málið..við fundum ekkert skilti sem gaf til kynna að það væri ættarmót á svæðinu. Þá fórum við að pæla hvort það væri allt tjaldsvæðið eða hvað...við gengum þá upp í sundlaug og ætluðum að spyrja kallinn sem maður borgar hjá um málið. En hann var hvergi að sjá en hann var víst væntanlegur. Á meðan við biðum eftir honum bættust alltaf feiri og fleiri af ættarmótinu í hópinn sem biðu og við komumst að því að þau væru að fara í mat í þessu húsi. Við vildum ekki bíða með þessu fólki þar sem okkur elið mjög óvelkomnar á svæðinu og ákváðum því að halda á leið og finna nýjan stað til að tjalda.
Áætlunin var að tjalda e-r staðar úti í óbyggðunum, þótt það sé ekki leyfilegt. Við ætluðum bara að vera svo útsmúgnar að láta engan sjá okkur :) Þar sem við erum stelpur ákváðum við að fara í smá ránsferð á klósettin í Varmalandi til að stela smá klósettpappír :P Við stukkum inn og fórum á klóstið hver á fætur annarri og komum ýmist með stærri brjóst eða ólettar út :) ... svo héldum við á leið að finna stað þar sem enginn myndi sjá okkur.
En það gekk brösulega. Það var alltaf spurning um hvernig við myndum fela bílana og sonna. Á endanum vorum við komnar á annað tjaldsvæði. Frekar lítið en mjög sætt. Við vildum vera vissar um að við værum velkomnar og fórum inn þar sem á að borga og spurðum hvort við mættum ekki örugglega tjalda þarna...jújú..það var sjálfsagt! Þetta byrjaði vel á þessum nýja stað, á átti eftir að batna :)
Við byrjuðum að tjalda en það gekk ekki vel þar sem við komum hælunum ómögulega niður þar sem jarðvegurinn var allur í steinum. Þá kom eldri maður sem var í húsbíl rétt hjá okkur og rétti okkur hamar :) Með honum gátum við lokið við að tjalda þessu fallega mannvirki :) þá kom vandamálið að koma lofti í vindsængurnar þar sem við vorum með 2 vindsængur ssem kröfðust pumpu en engin hafði tekið pumpu með! Þá kom kona nokkur sem var í tjaldi rétt hjá okkur og lániði okkur pumpu, nokkru síðar kom maðurinn hennar og lánaði okkur betri pumpu! hehe...
Með hjálp fólksins á svæðinu vorum við tilbúnar að elda matinn :) við byrjuðum að drekka og borðuðum dýrindis útilegumat beint af einnota grillinu :) Seinna um kvöldið var okkur frekar kalt og settumst inn í bíl til að hlýja okkur. Þá vorkenndi gamla konan í húsbílnum okkur og bjó til handa okkur heitt súkkulaði og setti í hitabrúsa fyrir okkur! mmm...það var gott síkkulaði :)
Svo fórum við bara í háttinn. Þegar við vöknuðum næsta dag borðuðum við morgunmat, pökkuðum saman, þrifum hitabrúsan og héldum heim á leið :)
Þetta var ein besta útilega sem ég hef farið í :) Takk fyrir góða skemmtun stelpur!
kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2007 | 10:11
...
Strax kominn föstudagur og ég sé fram á góða helgi framundan :)
Frekar rólegt kvöld í kvöld með elsku Herdísi og svo massív útilega á morgun! Ég er að búast við góðri útilegu stemningu í góðra vina hópi :) Spáin er líka einstaklega góð eins og veðrið hefur verið undanfarna daga..það er oft mjög erfitt að sitja hérna í móttökunni og horfa á sumrið úti, en alltaf gaman kl 4 þegar ég labba út og get leikið mér í sólinni :)
Núna eru einungis rúmlega 3 vikur í Tene! Sumarið er bara allt of fljótt að líða..en eftir sumarið tekur við líklegasta besta árið ásamt seinasta árinu í MR. Það verður skrítið að vera ein af "stóru krökkunum" en það verður bara stuð :) Ég hlakka til að fá að hrella litlu lömbin.
Ég verð að segja ykkur frá mest shokkerandi fréttum ársins..ég var bara að lesa það af mbl........Matvæli eru víst dýrust á Íslandi!!! OMG!!! ..Ég sem hélt að það væru allir búnir að ná þessarri vitleysu.
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2007 | 09:45
...
Ich bin soooo mude!!! (Ég er svoooo þreytt!!) Mín kom ekki heim í gær fyrr en kl hálf 2! Var að vinna, lokar hálf 12 en þar sem allt var í fokki vorum við súper lengi að loka :( Ég veit eiginlega ekki á hverju ég geng eða af hverju ég er vakandi. Ég svaf yfir vekjaraklukkuna en glaðvaknaði allt í einunkl 8 eftir vondan draum :( Þessi dagur byrjar alla vega ekki vel.
En helgin var ágæt áður en ég byrjaði að vinna í gær. Kíkti uppí sumarbústað til familíunnar. Í gær var svo gott veður að ég ákvað að skella mér í heitapottinn..ég sat í rúmlega hálftíma þegar mér fannst soldið heitt og ákvað að fara uppúr..og hvað skeði?? Ég var bara brunnin á bringunni! hehe..Ég er semsagt komin með bikinífar eftir hálftíma sólbað :P ekki slæmt það ;)
En þá er það spurning dagsins..hvað á að vera í matinn??? hmmm...þessi spurning er endalausa spurningin sem sjaldnast fæst gott svar á þegar maður er svona einn heima...ætli ég finni ekki e-ð gott í frystinum, að dæma af stærð flykkisins ætti e-ð ætilegt að leynast þar :P
en það er verið að reka mig í kaffi...
Kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2007 | 10:55
...
veivei..strax kominn fimmtudagur :) helgin alveg að koma..
Ég fann síðu með fullt af myndasögum..svona gerist fyrir fólk sem er að vinna svona vinnu :P hehe
Slóðin er http://comics.stuff.is ef þið hafið ekkert að gera eins og ég eða langar bara að lífga aðeins upp á daginn :P
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2007 | 14:15
...
Mér leiðist!! úff..ég sit hérna ein í afgreiðslunni og leiðist afskaplega :(
Ég er með Cosmopolitan og Glamour en SAMT leiðist mér. Ég er líka þreytt..það bætir ekki. Ég hlakka til að vera búin að vinna svo ég geti farið að borga útskriftaferðina :) og svo er matur hjá ömmu á eftir..alltaf gaman :D
Það eru svo mikið af útlendingum að koma hingað, sérstaklega yfir sumartímann..það eru flestir bara að koma að sjá húsið og pendúlinn..samt gaman að fá svona fjölbreytni :)
hmm..hvað er nýtt í fréttum..Pete hélt frmahjá Kate Moss!! OMG!! ... vá hvað ég verð leiðinleg á að vera hérna endalaust :S endilega hringið í mig eða e-ð..annars held ég áfram að blogga svona sjúklega leiðinlega :(
Það er samt margt athyglisvert í fréttum. Eins og að kvenréttindakona í Íran var dæmd til hýðingar og fangelsisvistar fyrir mótmæli vegna laga sem hún taldi valda misrétti kynjana. Ég held að þetta sé orðin alger hringavitleysa. Það eru lög sem stuðla að misrétti kynjana en svo þegar e-r kona mótmælir er hún bara hýdd og refsað..af karlmönnum!
en jæja, ég ætla að halda áfram að lesa Glamour og gleypa í mig visku heimsins :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2007 | 14:49
...
FÖSTUDAGUR!! :) jebb, ég er ánægð yfir því að það sé föstudagur í dag og fríhelgi framundan .. újeee :) Ég sé fram á góða helgi...Grillveisla, frí, ein heima, útborgun, gott veður .. og já frí :)
Ég sit núna niðrí móttökunni í Orkuveitunni, er að leysa af í tvær vikur. Svona er maður orðinn pró..getur bara hoppað úr einu starfi í annað eins og ekkert sé! Þetta er mjög þægilegt, lítið af fólki að koma svona yfir hásumarið..nema bara borgarstjórinn og frægir fréttamenn og sonna ;)
Á þessu starfi hérna niðri er ég bara mjög klár í tölvum! ég er að kenna konunum hérna alls konar skemmtilega hluti sem ég lærði í 5.bekk..í grunnskóla. Þær eru voða mikið krútt :) Ein á 58 ára afmæli á þriðjudaginn :)
Það er bara eitt ömurlegt við þessa vinnu..ég er inni allan daginn en sé rosalega vel hvað það er gott veður úti því ég sit hjá glervegg sem er stærri en húsið mitt. Ég er bara að pæla að fara í kaffi og setjast smá út :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2007 | 10:26
...
jæja, þá er ég loksins komin aftur í vinnuna. Er búin að vera veik í tvo daga :S Það var ekki gaman :(
Ég skellti mér í útilegu um helgina..samblanda af fjölskyldu og vinkonum..skemmtileg blanda :) Við kíktum á hátíð Trésmíðafélags Reykjavíkur sem var haldið á Stóra Hofi. Brenna, hlöðuball, ofnæmi og áfengi ... ásamt kollhnísakeppni :) Þetta var svakaleg útilega, sé ekki eftir að hafa farið.
Ég átti að vinna sunnudagskvöldið og mætti veik á svæðið. Ekki nóg með það heldur datt ég inni í kompu..ekki gott..og ekki hætti vesenið þar heldur skar grillarinn okkar sig svo illa að hún þurfti að fara uppá slysó, grillarinn okkar sem talar enga íslensku og nánast enga ensku :S Ég get ekki sagt að þetta hafi verið skemmtilegasta vakt í geymi :(
Núna er ég bara í vinnunni að láta mér leiðast, lesa mbl og sonna :) þar sá ég frétt um að rannsóknir bentu til að elstu systkini væru með hærri greindarvísitölu heldur en yngri systkinin...sem eru góðar fréttir fyrir mig þar sem ég er elsta systkini :)
kv Heiða
PS Til hamingju með afmælið Þórunn mín :*
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 13:26
...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar