15.6.2007 | 15:24
...
jæja, þá er ég loksins búin að fara í klippingu. Ég get nú sagt að ég sé nokkuð breytt þar sem ég er komin með svkalegan topp :) allar gömlu konurnar hér í OR umkringja mig og dást að hárinu, það er nú ekki slæmt :)
Ég fann hljómsveit á mæspeis í dag sem heitir Sprengjuhöllin. Ég komst svo að því að einn í hljómsveitinni vinnur hér í starfsmannahaldi í or OG þeir eru með lag um hana Heiðu :D ég og Heiða B hérna í þjónustuverinu erum yfir okkur hrifnar af þessu frábæra lagi að okkar mati :) endilega tjékkið á því á myspace.com/sprengjuhollin, lagið mitt heitir Verum í sambandi :) ég get ekki talið hversu oft ég er búin að hlusta á það í dag :P
Núna er ég búin með fata og skó kvótann minn fyrir mánuðinn. Hef sjaldan verslað jafn mikið af fötum á svo stuttum tíma :P ég á rétt svo fyrir djamminu framundan :S
jæja, ætla að fá mér vöfflu :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2007 | 12:42
...
ég er búin að fá mér barn!
Ég er byrjuð að styrkja litla stelpu í gegnum abc barnahjálp. Hún er 6 ára og heitir Aqsa Boota. Hún er frá Pakistan og er voða sæt :) Hún á 6 systkini og hún býr með þeim og foreldrum sínum í tveggja herbergja húsnæði í Farooqabad-s. Með minni hjálp fær hún læknisaðstoð, mat og skólagöngu, sem er mjög gott þar sem draumur hennar er að verða kennari :)
ég mæli sterklega með að allir styrki svona barn :)
E-ð annað að frétta..ég var á námskeiði áðan í vinnunni. Frekar mikið leiðinlegt, ég á núna að geta svarað fyrir gagnaveituna, sem er ljósleiðarinn. Það er fáránlega flókið :S En ég meina..þetta reddast ;)
jæja jæja...ætli maður fari ekki að vinna :)
Adiós amicos..hasta luego ;)
Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2007 | 10:46
...
Yes yes yes..aðeins 57 dagar í Tene! J það styttist óðfluga í útskriftaferð aldarinnar. Ég er líka byrjuð að finna smjörþefinn af henni þar sem ég er byrjuð að djamma allar helgar, þrátt fyrir að það sé vinnuhelgi. Eins og ég gerði núna. Enda er ég algerlega uppgefin á mánudegi :p
En as usual er ég alltaf að leita að e-u skemmtilegu á netinu. Ég er búin að lesa mikið af misjafnlega fyndnum bröndurum og hér er brandari dagsins af e-i síðu;
Two bats are hanging in their cave. One turns to the other and says, "Oh, I'm really thirsty for some fresh blood."
The other bat is amazed and says, "Well, its a bit late. Daylight is almost here, and we can't be exposed to any light - you know we'll die." "Yeah, I know," says the first bat, "but I'm really starving for it."
So he flies out of the cave and returns five minutes later with blood dripping from his mouth.
"You lucky thing. Where'd you find blood that quick?" asked the second bat.
"You see that tree over there in the distance?" mumbled the bat, his mouth full of blood.
"Yeah, I think I do!"
"Well, I didn't."
Hahahahahaha..vá ég er orðin svo súr á því að hanga í tölvunni allan daginn. Ég þarf að kaupa mér bók eða e-ð :P
Ég er líka orðin svaka fróð um margt skemmtilegt eins og í Hollandi er verið að búa til duft sem breytir vatni í alcohol! það á víst að vera með ávaxtabragði og bragðast eins og breezer. Það er alveg mega kúl :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 14:23
...
jæja..nú þegar ég er aftur byrjuð í Orkuveitunni er nánast nauðsynlegt að byrja að blogga aftur.
Ég er núna stödd í þjónustuverinu sem er mun erfiðara en skiptiborðið. Ef ég geri e-a skyssu gæti Jón út í bæ þurft að borga reikningana hennar Gunnu í Mosfellsbæ..þannig að það er bara að passa sig ;) Það er líka skemmtileg nýjung hérna í OR. Það er stórt plasma sjónavarp hérna á veggnum og alltaf stillt á stöð 2 þannig að ef mér leiðist get ég bara horft á eðal spænskar sápuóperur eða hljóðlausar hádegisfréttir :)
Á svo ekki að skella sér í útilegu í sumar í þessu góða sumarveðri? :) Ég er að fíla Barcelona fílinginn þegar maður fer út af skemmtistöðunum í þessarri birtu..minnir mig á ströndina kl 7 að morgni til í skítakulda eftir nokkra sex on the beach ;) :P
En núna verð ég að kveðja..var að fá endursendan póst sem þarf að athuga :)
kv Heiða þjónustufulltrúi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2007 | 15:20
...
vá, les þetta e-r??
Held ekki. Það er samt slveg stemning að tala við sjálfan sig á netinu :) Stemning
En jæja, alltaf sama sagan með mig. Alltaf mikið að gera, trop trop mikið að gera.
Um daginn fór ég í bíó með systrum mínum, voða gaman. Fórum á Dreamgirls :) En það er ekki það sem mig langaði að segja frá. Heldur að ég tók eftir því að það var blindur maður í salnum. Ég hef aldrei áður farið í bíó með blindum manni. Ég hélt að þeim fyndist það ekki gaman. En já, þessi krúttlegi kall virtist skemmta sér vel. Enda mikið um söng og sonna í þessarri mynd. Hann var líka með krúttlegu vinkonu sinni sem ég held að hafi e-ð sagt honum frá hvað var að gerast. En pæliði samt að hafa bara aldrei séð Beyonce Knowles eða Eddie Murphy! Bara heyrt í þeim tala og hlæja og sonna. Ætli þeir sjá Eddie fyrir sér e-n veginn sonna;
Maður spyr sig :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2007 | 15:14
...
jæja, ég er bara alveg hætt að blogga.
Núna er söngkeppni búin. Mér fannst hún bara ganga vel og hafa verið mjög flott :) Ég er ánæð með bara flest allt, kannski smá svekkelsi með að einn dómaranna þurfti að fara á spítala og gat því ekki komið, en ég vona bara að honum hafi batnað :)
Ég hafði ekkert að gera um daginn og fékk mér myspace síðu :P hehe, núna er ég öll komin í þessa muspace menningu, ég veit ekki alveg hvað mér finnst. Slóðin er allavega www.myspace.com/adalheidur ef e-r vill kíkja :P
en allavega, nenni ekki að tjá mig.
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2007 | 22:33
...
Jeg er so meget tröt! jebb, ég er búin að vera niðrí skóla í allan dag því æfing fyrir söngkeppnina fór fram. Ég er nú bara nokkuð sátt með gang mála og ég hlakka bara til að sjá hvernig þetta kemur allt saman út á fimmtudaginn :)
ég er alveg að hunsa lærdóminn, svefn og annað :S Ég veit ekki hvernig ég á eftir að meika þessa viku. Ég verð pottþétt veik á föstudaginn, alveg líkt mér :P
Jæja, ég ætla að skrifa spænskuritgerðina mína :)
kv Heiða Dögg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 22:48
...
sælirnú!
Klukkan er núna að verða 11 og ég var bara að koma heim úr skólanum eftir laaangan tíma í símhringingar vegna söngkeppninnar. Núna er þetta loksins komið á alvöru skrið og ég er ekki lengur stressuð upp fyrir haus :) Ég má ekki segja strax en dómararnir og kynnirinn eru mjög fær ;)
Vá, ég er svo þreytt að ég get varla séð á tölvuskjáinn..ég held að það ætti að segja mér e-ð :P Verð samt að klára ísl.bókina mína, Indjáninn eftir Jón Gnarr, sem er btw alveg ágæt bók, svona bók eins og ég vil lesa; tveggja bls kaflar og ekkert orð sem ég skil ekki :)
Jæja..góða nótt..zzzzzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 19:47
...
Jæja...er maður ekki bara á fullu núna! Söngkeppnin nálgast óðfluga, markaðsnefnd Herranætur að byrja og Háskólakynningarnar að fara á skrið..svo er auðvitað alltaf e-ð að gera í lærdómnum :P
Ætli ég hafi ekki líka bara verið að gera góða hluti í SingStar niðrí Cösu í dag??? hehe...það vildi enginn vera með þannig að ég neyddist til að syngja heil 3 lög þar sem þetta var á vegum skemmtinefndar! ég vann btw í einu þeirra sem teljast þarf sigur fyrir mig :P
Ég hef líka komist að því að ég er mjög góð í alls kyns tæknimálum...fyrir slysni :P Ég lagaði ísvélina niðrí vinnu með því að prufa að snúa einum takka og svo í gær var ég taka playstation úr sambandi og þurfti með því að færa allt settið...eftir það hefur sjónvarpið verið miklu skýrara...hvort sem það er út af nýrri staðsetningu eða vegna þess að það er laust við playstation...það hef ég ekki hugmynd um, ég veit bara að ég lagaði það :P ;) Ég bíð bara eftir að ég lagi e-n annan tæknihlut fyrir slysni :)
Anyhow...ætlaði bara að láta heyra í mér :)
kv Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2006 | 13:17
...
ég var að gera tvær merkar uppgötvanir hérna í OR þar sem ekkert er að gera. Ég frétti af síðu þar sem maður getur horft á nánast alla þætti sem þér dettur í hug..frítt! (www.alluc.org) og ég er auðvitað búin að hanga á henni í vinnunni. Í dag var ég að horfa á CSI:Miami, þætti sem er ekki búið að sýna hér og allt í einu byrjaði lag í einum þeirra sem mér er vel kunnugt...the One með Trabant!!! ég gjörsamlega missti mig! Ég er ennþá eftir mig :P
Allavega, ætlaði bara að tjá mig um þennan, að mér finnst, merka atburð :)
kv Heiða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Myndir
Aðrir
vert að athuga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar